Nesi&Bjarks
Fyndnar og góðar síður
Frí sms
Eurovision 2006
Klukkan
29.03.2006 19:12:54 / Bjarki

Jæja Bjarki hér

Jæja þar sem nú er orðið meira en mánuður síðan ég bloggaði síðast þá ætla ég að setja hér inn eitt litlu og sætu bloggi. Nú er hann Bjarki litli kominn með æfingarleyfi og er það bara alveg glæsilegt búinn að keyra í gegnum gönginn og allt nema að það ekk ekki eins og í sögu þar sem göngin eru bara halli niður og svo upp þá fattaði ég ekki fyrst að sleppa bensíngjöfinni fyrst og var kominn svolítið hratt þannig að ég slepti bara bensíninu en síðan ákváðu göngin bara að fara upp á við og ekki tók ég eftir því þannig að ég fór alveg niður í 40 km hraða og loks kom tvöfaldur vegur og þá tóku um 20 bílar framúr mér :D. En já nú styttist í samræmduprófin og hlakkar mér til að vera búinn með þau og þennan andsk... grunnskóla :). En svo tekur sumarið og ég hef ekki hugmynd við hvað ég ætti að vinna þannig að ef þið hafið vinnu fyrir mig endilega látið mig vita :).

En já þannig er nú það passið ykkur bara við veginn því ég gæti verið þar ;)

Og já Hann Guðni Reynir er kominn með bílpróf þannig að ef ég væri þið myndi ég bara sleppa því að koma eitthvað nálægt veginum. ;)

svoleiðis að ég bara kveð. Veriði sæl og blessuð


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 10:14:02 / Nesi

Þannig er nú það...

Já, ég sit hérna inni á bókasafni að gera ekki neitt. Er í gati. Er svo að fara á eftir í einhverja menningarferð útaf lífsleikninni. En já einsog þið kanski sjáið að þá hef ég breytt notendunum svo að þið sjáið hver er að blogga. Það hefur svosem ekkert mikið skeð hjá mér síðustu daga nema að jú. Fyrsta lambið er komið og það er búið að rýja rollurnar. Svo er bara að vonast eftir einhverjum snjó um helgina til þess að geta farið að leika sér eitthvað almennilega á hjólinu. En já, nenni ekki að skrifa meira í bili. Þetta var bara svona til að skrifa eitthvað svona þangað til að við fáum eitthvað frá Bjarka.

Bless..:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 19:40:07 / golfari

Nesi hér.......

Jæja, þá er maður kominn frá Kanarý, að vísu fyrir viku, og það var geggjað gaman þarna úti. Var að vísu pínu veikur fyrstu tvo dagana en svo var allt í lagi. Svo var auðvitað farið í sjóinn og við fórum tvisvar. Ég og Ási fórum fyrra skiptið svolítið langt útí og Einar var svona nær ströndinni en svo seinni daginn ætluðum við að fá Helgu og Dolla með útí en nei, þar sem Helga er svona skrítin einsog hún er að þá fór hún nú ekki langt. En ég, Dolli og Ási fórum alveg útí og vorum eitthvað að leika okkur að stinga okkur í öldurnar og sonna, BARA gaman sko. En já, svo fórum við líka í dýragarð og það var ekkert smá flott fuglashow þarna. Bara um leið og það kom einhver ákveðin tónlist að þá kom einhver ein ákveðin tegund af fuglum og flaug í hringi í loftinu og lenti svo hjá fólki sem var að stjórna þessu. Svo sáum við alveg RISA stórann örn, geggjað flottur. Svo voru einhverjar pínu litlar geitur og póníhestur og svo bara þetta venjulega. Fuglar og svoleiðis.

Svo fórum við í Vatnagarð og fórum í næstum allar rennibrautirnar sem voru þarna.Þ.a.s. ég,  Dolli, Ási og Einar. Fórum í einhverja fáránlega rennibraut sem var bara beint niður og það var ekkert smá vont að lenda inní henni því að maður var bara í loftinu næstum alla leið niður. Hata gular rennibrautir :D. Þegar við vorum búin í rennibrautagarðinum löbbuðum við aðeins í burtu og fórum í go-kart. Ég, Pabbi, Dolli, Ási og Einar. Auðvitað vann ég en að vísu var ég á kraftmesta bílnum. Voru ekki allir stilltir eins.

Svo var farið nokkrusinnum út að borða og það var svona misgóður maturinn.

Svo eru nú alveg stórfurðulegir búðakallar þarna. Koma alveg brjálaðir og ætla að selja manni eitthvað og oftast er hægt að lækka það um helling því að þeir selja á svo kolvitlausu verði þarna. Alltof mikið.

Þetta voru nú svona aðal atriðin úr ferðinni. Er alveg orðinn daufur í hendinni við að skrifa þetta allt.

 

En svona síðustu daga hefur það svo bara verið skólinn og svona. Og svo auðvitað fjórhjólið og sonna. Búið að vera smá snjór núna síðustu daga svo að maður hefur verið að leita að sköflum svona hér og þar til að keyra í á hjólinu.

 

Á föstudaginn á svo að fara að rýja rollurnar og hrútana. Koma einhverjir nýsjálendingar til að gera það.

Jæja, segjum þetta gott í bili. Vonumst svo bara eftir bloggi frá Bjarka bráðlega líka. Ble....


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 18:54:43 / golfari

Bjarki hér

 Jæja ætli maður fari ekki að skella einu litlu sætu bloggi hér :haha:

En já á fimmtudaginn síðasta tókst honum Guðna kallinum að læsa sig úti þannig að hann kom og beyð hjá mér eftir einhverjum til að koma og opna. Við skeltum okkur í pílukast og gekk það svona ágætlega og talsvert mikið hlegið.

Svo á föstudeginum fór ég og systa í idolið og var það feikna stuð og loksins datt Eiríkur út :haha:. eftir það fórum við í heimsókn til Svavars frænda og Danna og vorum þar til svona hálf 2 .

Laugardagurinn var bara afslöppunar dagur hjá mér og var fátt sem ekkert gert alveg eins og í dag. En svo er bolludagur á morgun og ætli maður éti ekki bara feit mikið af bollum þá :haha:.

Jebbs ætli þetta sé ekki komið nóg núna.

Bjarki kveður ;)  Nesi er nýbúinn að tjá sig líka hér niðri


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 23:36:11 / golfari

Nokkrar myndir

Já ég skellti inn myndum úr fjallaferðinni sem var farin á konudag sem var um síðustu helgi.

Á að vísu eftir að skrifa undir þær en geri það kanski ef ég nenni því einhverntíman seinna.

En annars í dag að þá var líka svona dagur í skólanum þar sem að við vorum ekkert að læra heldur bara fengum við að velja eitthvað sem var í boði með að gera. Ég fór í klifur og sig hjá björgunarsveitinni og þetta er bara geggjað gaman. Ætla að fá mér svona búnað einhverntíman og leika mér bara að síga í grifjunum eða eitthvað. Að vísu er ég með nokkur brunasár eftir línuna sem ég bara varla get talið því að þau eru svo mörg.:D Svo eftir hádegi vorum við bara eitthvað inní skóla og fórum svo aftur útí björgunarsveitahús að leika okkur eitthvað að síga og svoleiðis. Eftir þetta allt var ég svo bara sóttur og við fórum að versla og þannig. Eftir það var svo bara brunað heim og strax útí fjárhús að gefa og svona. Svo var matur og svo fór ég á æfingu og kom svo hérna heim og hér er ég búinn að vera síðan.:D semsagt fyrir framan tölvuna.

Svo er nú ein stórfrétt en hver skildi hún nú vera....?

Jújú, Guðni náði loksins bóklega bílprófinu og bara til hamingju með það skúnkur.

Segjum þetta bara fínt í bili.

Nesi...;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 22:55:57 / golfari

Já, löngu tímabært að það komi blogg hér inn :S

Já einsog ég sagði að þá er alltof langt síðan að það var bloggað hérna en þetta kemur þó allt með tímanum.

Það er svona hitt og þetta búið að vera í gangi hér og ætla ég því að segja frá því í stuttu máli :)   

Um helgina fórum við fjölskydan nema Helga í fjallaferð ásamt Dóra og Áslaugu. Þetta var bara snilldar ferð enda fjórhjólið með í för sem var geggjað gaman því að ég var á því alla leið frá Dímon og svo komum við niður línuveginn á Haukadalsheiði. Hjólið átti ekki í neinu basli við neitt og er ég bara mjög sáttur með þetta.:) Daginn þar á undan kviknaði að vísu í einum gám hérna úti á gámasvæði og þurfti að ræsa út lögreglu og slökkvilið frá Selfossi. En aftur að ferðinni. Þá vorum við í sirka 6 klukkutíma allt í allt í þessari ferð. Svo var að vísu stoppað svona inn á milli til að fá sér að drekka og fleira. Fórum ekki uppá Skjaldbreið þar sem það var svo mikil þoka á toppnum að það verður bara farið seinna. Þegar við vorum að koma að enda línuvegsins og að komast uppá þjóðveg að þá voru þar 2 litlar ár sem þurfti að fara yfir sem var allt í lagi og bara gaman .:) Svo var hjólinu skellt á pallinn þarna við aðalveginn og keyrt að Gullfossi. Skoðuðum hann og fórum svo þaðan á Geysir því að Einari langaði svo að sjá Strokk gjósa. Eftir það var svo bara brunað heim og byrjað að elda matinn. Dóri hafði ekki ákveðið neinn sérstakann kvöldmat þar sem þetta var nú á konudaginn þannig að við buðum þeim bara í mat til okkar og ég fékk nokkrar myndir í vélinni hjá Áslaugu.

Svo núna í vikunni hef ég bara verið að fara í skólann og sonna og er farið að hlakka mjög mikið til þess að komast í vinnuna. Í dag eftir hádegi byrjuðu svo Kátu dagarnir og ég og Ari fórum í golfkennslu, reyndar engin kennsla vorum bara að slá nokkrum kúlum, og svo í umsjón eftir það. Valberg ætlaði líka með okkur í golfið en þar sem að hann var veikur í dag að þá mætti hann ekki í skólann. Á morgun fer ég svo í klifur hjá björgunarsveitinni á Selfossi og í eitthver tæki á eftir því. Svo er bara að íhuga hvort að maður mæti á ball á föstudaginn eða ekki. Þegar ég kom heim í dag fór ég svo bara útí fjárhús að færa að og svo yfir á næsta bæ að hjálpa nágranna mínum að fara með verkfæri útí bíl.

Jæja, látum þetta gott heita í bili.

Nesi....!

Ps. Fer svo að skella inn myndum hérna inn úr ferðinni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 20:48:19 / golfari

Klukkaður af Ása

Jújú, ætli maður verði ekki að gera þetta líka :)

4 Störf sem ég hef unnið um ævina :

Unglingavinnan í viku, Gróðurstöðin á hæðarenda og Golfklúbbur Kiðjabergs sem er best og svo bara hérna heima við.

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur :

Aðalkarlarnir, White chicks, 2Fast2Furious og Fast to the furious


4 Staðir sem ég hef búið á:

Klausturhólar, 1-2-3 og 4

4 Sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:

Friends, Simpson, Nágrannar og ég bara veit ekki þann síðasta

  
4 Staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Vestfirðir, Höfn í Hornafirði, Skorradalur og Kiðjaberg4 síður sem ég les daglega:

Les fáar daglega en þessar aðal eru Þessi, Inga, Helga og Magga

4 málíðir sem ég held uppá:

Nautakjöt, Hamborgarahryggur, Pizza og lambakjöt

4 bækur sem ég les oft:

 Skólabækurnar

4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna:

Kanarý, Kiðjaberg, París og Ítalía

4 sem ég ætla að klukka:

Maren, Haddi pitt, og veit ekki fleirri, bara þeir sem að vilja :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 19:29:25 / golfari

Bjarki skrifar

Jamm hann Ási klukkaði mig eða Nesa eða okkur báða, en ég ætla allavegana að svara.

4 Störf sem ég hef unnið um ævina :

Unglingavinnan, Unglingavinnan, Unglingavinnan og ekki meir

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur :

LOTR, Indiana Jones, Ace ventura og Happy Gilmor


4 Staðir sem ég hef búið á:

Hafnafjörður, Álftanes, Bifröst og Borg :D

4 Sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:

Friends, Joey, Prision Break og The O.C.
 
4 Staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Grænland í 4 tíma, Akureyri, Egilstaði, Öndverðanes

4 síður sem ég les daglega:

Bara mína og Nesa svo aðrar af og til

4 málíðir sem ég held uppá:

Nautakjöt, Kalkúnn, Hangikjöt frá Klausturhólum og Hamborgarahryggur

4 bækur sem ég les oft:

 Ha? Bækur? Hvað er það?

4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna:

Bandaríkjum, Kanarý, Ástralíu, Grikkland

4 sem ég ætla að klukka:

Helgu, Siggu og svo tek ég undir að Nesi eigi líka að gera þetta


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 15:01:48 / golfari

Stutt og laggott

Sælt verið fólkið :D

Bara láta vita af spurningum um mig í Töff stöff. Allir kíkja :D

Kv. Bjarki


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 20:34:09 / golfari

Bjarki hér :D

jæja nú er komið af mér að blogga og mun ég gera það með stæl ;) Þessi helgi var snild

Á föstudeginum var bara chillað þar til Idolið byrjaði og varð maður náttúruleg að styðja Selfyssinginn Ingó á þessu GLÆSILEGA sviði:D en eftir það var skellt sér á þorrablótsball þar sem var dansað og skemmt sér alveg konuglega:D til svona 3 held ég og fór ég þá á Klausturhóla þar sem ég var restina af helginni.

Laugardagurinn var bara rólegur og var bara chillað og horft á dvd og þá komst ég að því að ég á ekki að horfa á hryllingsmyndir eða bregðumynd því mér bregðuralveg þvílíkt :D svo um kvöldið fórum við Nesi til Ása og Möggu og fórum við í Forsetarassgat og ég vann svo oft að ég hef ekki einusinni tölu yfir það :D

Svo var það sunnudagurinn en þá fórum við Nesi, Magga, Sævar, Herdís, Sigga, Freydís og svo kom Inga síðar með Ása til að halda uppá afmælið hans sem var 25 :D en fyrst fórum við á skauta sem var svakastuð og svo duttu allir nema ég 8) og Anna María systir Ása. Eftir það var farið á Pizza hut þarsem var etin pizza og þá kom Inga í hópinn eftir pizzuna var bara chillað í Smáralind í einhvern tíma og labbað í búð og aðra búð með engum tilgangi eftir það var skellt sér í bíó á Fun With Dick And Jane sem er bara helvíti fín mynd. Svo á kjellin bara 16 ára afmæli á morgun 31. ;)

Nohh sko sjá þetta flotta blogg mitt. Muna svo að skrifa í gestó.

ok ég mun reyna blogga svo sem fyrst svoleiðis að ég segji bara veriði sæl:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 18:28:57 / golfari

Þannig fór það nú:)

Já, eitthver verður víst að blogga og mun það vera Nesi þetta skiptið.

Þessi vika hefur bara verið nokkuð góð skal ég segja ykkur. Nú er allt búið með fjórhjólið og það fór í gær á Selfoss. Ari heitir hann sem keypti það og er með mér í nokkrum tímum í skólanum. Svo núna í dag er ég bara búinn að vera að gera lítið. Kíkti til Ara með Valberg og ég var eitthvað að sýna honum ýmislegt varðandi hjólið og sonna á meðan ég var að bíða eftir því að ég yrði sóttur.  Fór að vísu fyrst með Valberg útá vist. Svo var ég sóttur og fór beint heim. Svo þegar ég kom heim tók ég traktorinn úr grifjunum og heim á leiðinni og fór svo beint að gefa rollunum, beljunum og hestunum hans Gísla. Eftir það fór ég svo bara inn og hér er ég núna. Er svo að fara á æfingu á eftir:P

Segi þetta gott í bili. Ble...


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 18:58:30 / golfari

Jahá..nokkuð gott

Jæja, er ekki kominn tími á eitt blogg hérna.

Það er ekkert mikið búið að ske nema það að það kom LOKSINS einhver sjór að viti og þá náttúrulega fór maður beint út, setti sleðana í gang og fór útá tún. Svo í gær þá varð ég einum tíma of seinn í skólann útaf veðri. Það var alveg brjálað, sem var hinsvegar mjög gott. En svo fór að rigna smá sem gerði að vísu bara enn betra því að þá frýs snjórinn og þá er bara enn betra að keyra. En svo um daginn þá voru staðfest kaup á Puma hjólið en að vísu ekki búið að ganga frá öllu, ég á það enþá. Svo að þá er að fara að velja annað hjól til þess að kaupa og kemur Polaris Magnum 330 sterklega til greina eða Suzuki minkurinn. Puma fer svo á næstunni en verður að vísu geymt hér í einhvern tíma þar sem ég þekki þann sem er að kaupa og kemur þá bara regluleg og við förum að keyra.

Jæja, þetta var stutt og laggott en ég bara nenni ekki að skrifa meira núna.

Kv. Nesi


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 22:54:33 / golfari

Þetta er Bjarki

Þar sem ég sagðist ætla kanski að setja þetta inná bloggið mitt þá verð ég að standa við það. Vonandi svara einhverjir:haha:

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig

Svaka blogg fyrir neðan :D

Og minni á að ef þið viljið svara um Nesa þá er það á síðunni hans


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 22:51:09 / golfari

Jæja Bjarkinn að blogga ;)

Jæja í þessari viku er ég gjörsamlega ekki búinn að gera neitt nema spila fótbolta og fara í skóla. Yeaa fun:D. jamm oki, ég gat ekki valið betri tíma í að blogga í fyrsta skiptið í ca. 1 og1/2 ár þarsem ég hef ekkert að segja frá. Núna er ég bara að chilla uppá Bifröst hjá systir minni og horfa á einhverja þætti sem eru í tölvunni, aha þeir eru "stolnir" einsog sumir vilja kalla það. Jæja ætli maður fari ekki að slá í botn á þessu fræðilega skemmtilegu bloggi og fari að horfa á eitthvað meira "stolið" sem maður finnur í tölvunni :).

Þannig að ég vona að Nesi komi með eitthvað áhugaverðara en þetta.

oki, Bless í bili :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 18:06:31 / golfari

Helgin hjá okkur...:D

Jamm, við Bjarki hittumst á selfossi á þrettándanum og fórum til Röggu og Magga.( þ.a.s. nesi og fjölskylda og bjarki). Þar vorum við til kl. 12 og fórum svo eftir það uppí sveit. Bjarki fékk að fljóta með og er búinn að vera síðan þá. Á Selfossi vorum við í kaffi og fórum svo í einhvern tunglleik sen Gunndís og Laufey kunnu. Vorum í honum í smá tíma og fórum svo í Trivial Persuit og sönnuðum það að strákar eru gáfaðri en stelpur. Saman í liði voru Nesi, Bjarki og Brynjar og í hinu liðinu Gunndís, Laufey og einhver ein önnur. Við unnum að sjálfsögðu, svo eftir það fórum við að gera það sem við Bjarki og Brynjar gerum best, hvað haldiði.....SINGSTAR.... Að vísu vorum við með hálsbólgu og kvefaðir með hita (hóst) svo að við unnum ekki í það skiptið. Þetta var skipt í stelpu og strákalið og stelpurnar búnar að vera að æfa sig náttúrulega svo að það var ekkert að marka. Svo fórum við uppí sveit og í singstar þar og auðvitað var alltaf rúst rúst rúst hjá mér (nesi) því bjarki náði alltaf bara einu stigi. Það var ýmist 12-1 eða 9-1. Svo hættum við því kl 4 og fórum að sofa. Svo í gær fórum við á brennu á Selfossi kl. 5. Svo þegar það var búið var pöntuð pitsa á pizza 67 og farið í nóatún á meðan verið var að baka. Fórum svo og sóttum pitsuna og fórum heim. Þá ákváðum við að fara í tunglleikinn sem var þangað til að við komum heim og fórum að eta. Svo fórum við að búa til þessa síðu fram á nótt og og fórum að sofa kl. 4.

Í dag hefur lítið gerst en núna erum við bara hér að blogga og Einar og Bjarki í Viltu vinna milljón.

Kveðjum í bili. Nesi og Bjarki


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
23. febrúar 2012